11.10.2006 23:54:35 / Kolli

Snjóleysi!

Jæja gott fólk.. ég sit hér og bíð eftir snjó! Það er snjókoma á akureyri! en ekki í þessari holu sem við köllum Kópavogur og nágreni.

Újé! ég er mjög líklega að fá WEthePEOPLE BMX hjól eftir svona hálfan mánuð =D 40 þúsund kéll! Síðan er ég að selja Borðtölvuna mína, nota það til að fjárfesta í brettavörum, t.d. Nýja Úlpu =)


En já.. MR ball á morgun, kanski að maður skelli sér? Maður veit aldrei -_-
Síðan er þetta rosalega Salapartý á laugardaginn, kanski að maður dragi sindra með? Held að Beggi ætli á þetta og eflaust haugur af fólki í viðbót (blog.central.is/salaparty)


allavega núna er ég að bíða eftir því að X-men: The Last Stand klári að downloadast því þá ætla ég að horfa á hana! woohoo! ég er nefnilega í miðannarfríi eða hvað sem þetta heitir! Engin skóli á Fimtu-, Föstu-, Laugar-, Sunnu- og Mánudag!! Jeij :D

Lövin it! :D


allavega, ég kveð að sinni.
-Kolli

» 1 hafa sagt sína skoðun

03.10.2006 22:36:37 / Kolli

Foo Fighters - Skin and Bones

já hérna kemur lagið Skin and Bones með Foo Fighters sem Á að vera á Best of You disknum samkvæmt Jay Leno er það er ekki þar! Frábært lag! besta sem ég veit um með FF, Enjoy!


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.10.2006 01:17:06 / Kolli

Nótt

Jæja, ég sit hér í fartölvuni minni heima hjá birni, hann er að hlusta á nýja MCR lagið og ég að skoða B2'arann, mjööög skemtilegt :D datt einmitt á þetta, algjör snilld ;)

» 1 hafa sagt sína skoðun

26.09.2006 10:22:37 / Kolli

Daginn

maður er bara í smá eyðu ^^er baara að hlusta á mjúsic og tjílling, get it? haha


En hérna, var að finna þetta lag! fráááábært!

Lunatic Calm - Leave you far Behind, finn ekki alvöru video við þetta, anime verður að duga!



» 1 hafa sagt sína skoðun

17.09.2006 17:04:02 / Kolli

Powerman 5000 - Free

Góðan daginn, í dag vaknaði ég kl 10:30! til þess að fara að vinna! Jé


En í dag fann ég eitt frábært lag, Powerman 5000 - Free

Smá Billy Idol lookalike þarna? og svo Slash lookalike á gítarnum? hmmm

» 1 hafa sagt sína skoðun

15.09.2006 14:14:18 / Kolli

V for Vendetta

já, skólinn búin að vera leiðinlegur og langdreginn.. =(

En hérna kemur mín uppáhalds kvikymnda "setning" allra tíma!

Fræga ræðan hjá V þegar hann kynnir sig fyrir Eve



» 0 hafa sagt sína skoðun

10.09.2006 02:12:28 / Kolli

hahahaha

Mér leiðist... hefur leiðst undafarið ^^ Ég og björn leigðum mynd áðan :D Tókum Dukes of Hazzard (geðveikur bíll!) og Taxi (ameríska sullið). loads of fun

en hérna er Borat! sami gaur og leikur Ali G =D Enjoy!



» 2 hafa sagt sína skoðun

08.09.2006 00:24:58 / Kolli

Dagurinn í gær

Já ég byrjaði gærdaginn (kl er 00:09 ^^ ) á því að horfa á Rockstar Elimination. Fór síðan að sofa og vaknaði kl 08:30, fór í sturtu og klæddi mig og gerði mig geggt fínan sklru? Hjólaði síðan niðrí mjódd og tók 24 niðrí borgó. Þar skellti ég mér í tvöfaldan MHL 103 tíma hjá Henni hafdísi sem á ógeðslega góða Mac fartölvu sem er miklu betri en okkar tölvur og hún er líka ógeðslega góður ljósmyndari og er með alveg geðveikt flokkunarkerfi á ´myndonum sínum (kaldhæðni btw)

Síðan kl 11:30 þá var hjólað/labbað/hlaupið/línuskautað af stað. Þar sem Borgó er að byggja skóla í einhverju 3. heims landi (man ekki nafn einmitt núna) sem er 7140 km eða svo frá Íslandi, þá þurftu 720 eða svo nemendur og kennarar að skrá sig í það að hlaupa/labba/hjóla/línuskauta 10 km. Náttúrulega er ég algjör powerhorse að ég hjólaði þettá. Sindri hjólaði líka sem að gerði þetta skemtilegra ^^ Þar hitti ég í fyrsta skipti nokkra "fræga" hugara og hjólara sem að eru vinir Sindra og einn af þeim hjólar um á Kona Stinky sem er bara draumahjólið (kostar 300 þúsund!! =( ) Allavega á leiðinni þá voru þessir guttar stökkvandi fram af hæstu tindum og "skemmandi" gólfvöllin með að hjóla og stökkva á honum.

Þegar við vorum búnir að hjóla þessa 10 km þá fóru ég, Sindri og robbi niðrá Skateparkið sem er ágætlega nálægt borgó og fórum eithvað að fíflast þar. Fékk að testa BMX á Parki í fyrsta skipti þar en tókst að detta á hnéð og meiða mig svo ég hætti bara =) Sindri hélt smá áfram þangað til að hann datt við það að gera 180 uppá svona pall (getur það alveg drengurinn) og meiddi sig alveg gríðarlega. Fórum síðan aftur uppí skóla. Ég fór þá í tvöfaldan STÆ 102 tíma en hann entist í svona 30 min. Síðan var það bara tvöfaldur FÉL 103 og síðan beint í ökutíma!

Í ökutímanum fórum við niðrá miklubraut! vá þvílík traffík maður! tók endalaust langan tíma. fórum síðan niðrá laugarveg en þar keyrði ég framhjá Viktoríu og síðan Stebba! veei =D

Síðan kom ég bara heim og hef bara chillað hérna heima. Er hlustandi á smá Djass núna, verður varla betra =) En það er enginn skóli hjá mér á morgun því Borgó er 10 ára, heppilegt =)

En ég kveð núna og skelli hérna inn einu lagi í lokinn =)

Takk fyrir mig, - Kolbeinn Ingi


» 8 hafa sagt sína skoðun

04.09.2006 23:21:24 / Kolli

Thom Yorke

Hérna er þessi snillingur að gera acoustic útgáfu af SNILLDAR laginu "The Clock"

Get hlustað endalaust á þetta

(Lagið flutt til hliðar í dálkinn =) )


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.09.2006 18:36:48 / Kolli

4 september

Jahá, í dag var LAAAAAANGUR skóladagur. var alveg frá 08:10 til 17:30(á að vera til 17:40). Var í mínum firsta íþrótta tíma í dag líka, hlupum 4,7 km í rigningu, leiðinlegt =(

En í tilefni þess að ég hljóp 4,7 km! þá set ég The Automatic - Monster hingað inn! enjoy

Færði lagið til vinstri í Videos dálkinn =)

» 2 hafa sagt sína skoðun

23.07.2006 19:50:45 / Kolli

Arrg!

Ég var búinn að skrifa frekar mikið, geri Staðfesta en samt kom ekkert! Hata þessa síðu!!=@

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.06.2006 01:06:13 / Kolli

17-18.06.2006

Hæ hó og jibbý jeij og jibbý jeij, það er liðinn 17 júní!

Já þá er 17 júní liðinn!

Maður vaknaði um hálf 2 eftir næstumþví 12 tíma svefn. Skellti TOOL í gang og át Coco Pops. Síðan um 3 leytið hann Björn hingað. Við hlustuðum á smá tónlist og skelltum okkur síðan niðrí bæ! Vorum þar í nokkra klukkutíma þangað til að við fórum niður á Rútstún af því að við sáum engan sem við þekktum niðrí bæ, ampop var búið og við nenntum ekki að bíða eftir Dr. Spock.

Þegar við vorum rétt ókomnir niður á Rútstún byrjuðu Ampop að spila, við hlustuðum á þó í hörmulegum gæðum vegna drasl hljómflutningatækja sem voru þarna á svæðinu. Við hittum Iðunnnnnnnnnni og Önnnnnnnu þarna, svekkjandi Æ Knów! Síðan löbbuðum við heim, hittum Börk og spauguðum smá í dregnum því hann vinnur í Timbursölunni hjá Býkó! Ha Ha!

En já, meira var það ekki. Við eurm að hlusta á Taking Back Sunday - I'll Let You Live sem er alveg fantagott lag.

-Kolbeinn


» 5 hafa sagt sína skoðun

16.06.2006 16:14:42 / Kolli

´JESS!!

Jeij! góður dagur í dag!

Ég fór niðrí Nóa að vinna. Um svona 11 leytið var okkur boðið í köku, vond marsípan kaka en who cares? Síðan kl 11:30 var okkur á lagernum boðið á Ruby Tuesdays og við vorum þar í svona 1 tíma, fékk mér einhver colossal 2 hæða hamborgara! mmmmmm!!! Síðan komum við aftur og þá var bara chill á meðan hinir fóru á Ruby tuesdays, voru engar pantanir svo ég og Viktor(1 strákur í vinnuni) voru  bara að flippa á liftaranum og testuðum að láta plasta okkur í plöstunarvélinni^^  Síðan um 2 leytið þá voru aðeins 3 pantanir, við vorum 5. 1 lítil og 2 stórar, við drifum þær af og fengum að fara heim á launum! Heill klukkutími =D

En já, ég kommst inn í Borgarholtsskóla!! =D 

-Kolbeinn


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.06.2006 23:40:01 / Kolli

12.06.2006

Jæja helgin búin, maður lét sér leiðast! leigði mynd með Bjössa einnig, vann í Netto. Mjög svo spennandi


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.06.2006 18:31:27 / Kolli

9.06.2006 - Hmmm

Já þá er maður byrjaður að vinna í Nóa Siríus. Þetta er ekki gríðarlega erfið vinna en ég kem samt heim alveg dauðþreyttur... Weird 'innit?

Allavega, HM byrjað! jibbý!











» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3